Siðareglur
Samþykkt á aðalfundi BFÍ 17. apríl 2010.
0.INNGANGUR
0.1 Í siðareglum þessum eru birtar þær hugsjónir og meginreglur, sem Byggingafræðingafélag Íslands telur að byggingafræðingar beri að hafa að leiðarljósi í starfi sínu.
1.MARKMIÐ
1.2. Byggingafræðingur skal í starfi sínu stuðla að aukinni virðingu fyrir og viðurkenningu á vandaðri hönnun, umhverfi og byggingafræðingsstarfinu. Hann skal ætíð hafa í huga og virða hagsmuni þeirra, sem nota munu og njóta verka hans.
1.3. Byggingafræðingur skal taka tillit til áhrifa verka sinna á mannlegt samfélag, náttúru og umhverfi í víðtækasta skilningi.
2.HÖFUNDARRÉTTUR
2.1. Byggingafræðingur ber að kynna sér sérstaklega þær reglur íslensks og alþjóðlegs höfundarréttar sem tengjast starfi byggingafræðinga.
2.2. Byggingafræðingur ber að virða höfundarrétt annarra.
2.3. Byggingafræðingur skal í samningum sínum leitast við að fá viðurkenningu á sæmdarrétti sínum, þar á meðal nafngreiningarrétti.
3.SKYLDUR GAGNVART VERKKAUPA.
3.1. Byggingafræðingur skal gæta hagsmuna verkkaupa og er trúnaðarmaður hans. Hann beitir þekkingu sinni, reynslu og færni í þágu verkkaupa við framkvæmd umsamins verkefnis, enda brjóti það ekki í bága við siðareglur þessar.
3.2. Byggingafræðingur skal taka viðeigandi tillit til fjárhagslegra, fagurfræðilegra og hagnýtra sjónarmiða verkkaupa við framkvæmd verkefnis.
3.3. Byggingafræðing er skylt að veita verkkaupa sem gleggstar upplýsingar um framkvæmd og áætlaðan kostnað fyrirhugaðs verkefnis og sjá til þess að gerður sé skilmerkilegur samningur um verkefnið.
3.4. Byggingafræðingur skal áskilja sér sanngjarnt endurgjald sem hæfir faglegri úrlausn verkefnis.
3.5. Byggingafræðingur skal gæta trúnaðar um sérhvert málefni sem honum er trúað fyrir í starfi.
3.6. Byggingafræðingur skal leitast við að viðhalda og auka starfsþekkingu sína þannig að hún standist mál hvers tíma.
4.SKYLDUR GAGNVART ÖÐRUM BYGGINGAFRÆÐINGUM
4.1. Byggingafræðingar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum viðeigandi tillitssemi.
4.2. Byggingafræðingur skal ekki leita eftir að koma í stað byggingafræðings sem hefur þegar samið um verkefni eða á í samningum um verkefni.
4.3. Byggingafræðingur skal ekki taka við verkefni annars byggingafræðings nema fyrir liggi að fyrra samningsambandi sé lokið með eðlilegum hætti.
4.4. Byggingafræðingur sem til er leitað af verkkaupa um að taka við verkefni úr hendi annars aðalhönnuðar, þar með talið að breyta eða auka við mannvirki, skal gera starfsbróður sínum viðvart svo honum gefist kostur á að gæta hagsmuna sinna.
4.5. Byggingafræðingur sem hefur annan byggingafræðing í vinnu samkvæmt ráðningarsamningi skal fara að lögum og góðum venjum um kjara- og starfsskilyrði. Starfsmaður skal njóta leiðbeininga og eiga þess kost að hæfileikar hans og reynsla fái notið sín.
4.6. Ráðnum byggingafræðing skal gefast kostur á að taka þátt í samkeppni, enda fari slík þátttaka ekki í bága við hagsmuni byggingafræðings, sem hann starfar hjá. Nafns starfsmanns skal getið í tengslum við einstök verkefni og sýningar þegar þáttur starfsmanns er verulegur.
5.SAMSKIPTI BYGGINGAFRÆÐINGS VIÐ AÐRA
5.1. Byggingafræðingur er sjálfstæður og óháður ráðgjafi verkkaupa í samskiptum við aðra, svo sem verktaka, vöruseljendur, ráðgjafa og aðra sem verkkaupi kaupir þjónustu af. Byggingafræðingur veitir verkkaupa faglega og hlutlæga ráðgjöf í samskiptum hans við þessa aðila.
5.2. Byggingafræðing er óheimilt að nota sér verkefni sitt eða aðstöðu sína til að áskilja sér hagsmuni úr hendi þeirra, sem verkkaupi á viðskipti við.
5.3. Byggingafræðingur má ekki misnota aðstöðu sína til að afla sér verkefna eða afla sér hagsmuna með því að miðla verkefnum til annarra.
5.4. Byggingafræðingur má ekki eiga hlut að auglýsingum um vöru eða þjónustu, sem hann vegna starfs síns skal hafa hlutlæga afstöðu til, þannig að það skerði trúverðugleika hans sem óháðs ráðgjafa.
5.5. Byggingafræðingur má ekki inna af hendi umboðslaun eða aðrar greiðslur til þess sem getur haft áhrif á ákvörðun um miðlun verkefnis. Hann skal heldur ekki veita viðtöku slíkum greiðslum þegar hann hefur sjálfur áhrif á sambærilega ákvörðun.
5.6. Byggingafræðingur sem hefur áhrif á niðurstöðu samkeppni eða kaup á þjónustu byggingafræðings, skal einungis láta stjórnast af faglegum og hlutlægum sjónarmiðum.
5.7. Byggingafræðingur skal við úrlausn verkefna sinna gæta þess að ekki sé brotið í bága við lög og stjórnvaldsreglur. Einkum skal hann kynna sér reglur á sviði byggingamála, skipulagsmála, ferlimála fatlaðra og umhverfismála.
6.AUGLÝSINGAR OG KYNNING
Byggingafræðingur skal gæta þess að veita ekki rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum eða á annan hátt. Honum er óheimilt að afla sér viðskipta með óréttmætum viðskiptaháttum.
7.ÁGREININGSMÁL
7.1. Verkkaupi getur innan árs frá því að tilefni gefst til lagt ágreining við byggingafræðing, sem er félagsmaður í Byggingafræðingafélagi Íslands, um brot á reglum þessum fyrir siðanefnd félagsins. Byggingafræðingur getur og lagt fyrir nefndina ágreiningsmál við byggingafræðing eða eftir atvikum kært annan byggingafræðing fyrir nefndinni vegna meints brots á siðareglum þessum, enda þótt kærandi eigi ekki sjálfur í ágreiningi við hinn kærða byggingafræðing.
7.2. Siðanefnd skal skipuð þremur félagsmönnum sem aðalmönnum og einum til vara kosnum á aðalfundi BFÍ til þriggja ára í senn. Nefndin skiptir með sér verkum. Stjórn BFÍ setur nefndinni málsmeðferðarreglur þar sem gætt skal jafnræðis aðila sem og annarra almennra reglna um réttláta málsmeðferð. BFÍ ber kostnað af störfum nefndarinnar, þar með talið af löglærðum ritara nefndarinnar, ef við á.
7.3.1. Siðanefnd tekur einungis afstöðu til þess hvort byggingafræðingur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar eða ekki og hvort brot telst ámælisvert, alvarlegt eða mjög alvarlegt. Sé ágreiningur um málsatvik, sem úrskurð óhjákvæmilega verður að reisa á, skal vísa máli frá.
7.3.2. Siðanefnd getur þegar um alvarlegt eða mjög alvarlegt brot er að ræða mælt með að hinn brotlegi greiði kostnað vegna málsins.
7.4. Siðanefnd sendir niðurstöður sínar til stjórnar BFÍ, sem kynnir niðurstöður fyrir félagsmönnum í málgagni félagsins eða á aðalfundi, allt eftir alvarleika málsins.