Eldri lög Byggingafræðingafélags Íslands

Samþykkt á aðalfundi 14. apríl 2016

1.grein (nafn, staðsetning)

Félagið heitir Byggingafræðingafélag Íslands, skammstafað BFÍ. Það hefur aðsetur í Reykjavík.

2.grein (markmið)

Markmið BFÍ er að efla og bæta allt er snýr að mannvirkjagerð og umhverfi þeirra. Félagið er fyrst og fremst hagsmunafélag og er því ætlað að gæta hagsmuna byggingafræðinga, efla samstarf þeirra, kynna starfsstéttina út á við og stuðla að aukinni fræðslu félagsmanna.

3.grein (gjaldgengir félagar, skilyrði)

Félagsmenn geta þeir einir orðið er lokið hafa prófi í byggingafræði frá skólum sem félagið viðurkennir og hafa hlotið löggildingu starfsheitisins byggingafræðingur.

Jafnframt geta nemar í byggingafræði sem stunda nám við skóla sem félagið viðurkennir, gerst aukafélagar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Aukafélagar greiða ekki félagsgjöld.

4.grein (viðurkenndir skólar)

Viðurkenning á skóla fer fram á stjórnarfundi. Að undangenginni ítarlegri athugun skal hún kynnt á félagsfundi og hljóta þar samþykki meirihluta félagsmanna á fundinum.

5.grein (félagsgjöld)

5.1 Félagsgjöld eru ákvörðuð á aðalfundi.

5.2 Undanþegnir greiðslu félagsgjalda eru stjórnarmeðlimir og varamenn, félagar sem náð hafa 67 ára aldri, félagar á fyrsta ári og aukafélagar (sbr. 3. gr).

5.3 Allir byggingafræðingar á skrá hjá félaginu, að þeim undanskildum sem getið er í 5.2, fá senda greiðsluseðila vegna innheimtu félagsgjalda. Sitjandi félagsstjórn ákvarðar hvernig greiðslum er háttað hverju sinni.

5.4 Þeir sem greiða árgjald hvers árs teljast félagsmenn með atkvæðisrétt.

6.grein (að kenna sig við BFÍ)

Félagsmenn, sem greitt hafa árgjald, hafa einir rétt til að kenna sig við félagið og nota skammstöfunina BFÍ með nafni sínu.

7.grein (félagsstjórn)

7.1 Félagsmaður skal samþykktur með kosningu til að fá sæti í stjórn félagsins.

7.2 Félagsstjórn er skipuð fimm aðilum, formanni og fjórum meðstjórnendum. Auk þeirra eru skipaðir tveir varamenn. Stjórnin kýs varaformann úr sínum hópi og skiptir með sér verkum. Forfallist formaður á kjörtímabilinu, skal varaformaður taka sæti hans. Varamenn skulu boðaðir á alla stjórnarfundi og hafa þeir tillögurétt.

7.3 Í hverri stjórn skulu sitja minnst tveir aðalstjórnarmeðlimir fráfarandi stjórnar.

7.4 Aðilar stjórnar eru kosnir til eins starfsárs í senn. Kosning skal vera skrifleg ef um mótframboð er að ræða.

8.grein (endurskoðendur)

Endurskoðendur eru tveir og einn til vara. Þeir skulu kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Við kjör stjórnar og endurskoðenda geta félagar, sem ekki geta sótt fund, sent skrifleg atkvæði sín undirrituð og vottfest.

9.grein (störf og skyldur stjórnar)

9.1 Stjórn félagsins hefur umboð til að skipa vinnuhópa til sérverkefna.

9.2 Stjórn félagsins skal halda skrá yfir félagsmenn annars vegar og hins vegar yfir alla byggingafræðinga á Íslandi með eftirfarandi upplýsingum: nafni, kennitölu, heimilisfangi, síma og netfangi.

9.3 Stjórn félagsins skal halda skrá yfir fjölda þeirra sem hlotið hafa löggildingu starfsheitis á starfsárinu og koma upplýsingum á framfæri í skýrslu stjórnar á aðalfundi.

9.4 Stjórn félagsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra, setja honum starfsreglur og veita honum prókúru, leyfi fjárhagur félagsins það.

9.5 Stjórninni er heimilt að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi félagsins, leyfi fjárhagur félagsins það.

10.grein (sérdeildir)

10.1  Heimilt er að stofna innan félagsins sérdeildir, sem fjalla um:

    1. a)Hagsmunamál félagsmanna.
    2. b)Sérmál félagsmanna.

10.2 Lagaákvæði sérdeilda og breytingar á þeim skulu hljóta samþykki aðalfundar BFÍ á sama hátt og lög BFÍ. Allar þær samþykktir sem áhrif geta haft á aðra félagsmenn skal bera undir stjórn BFÍ.

10.3 Félagsdeildir mega ekki koma fram opinberlega, án samþykkis stjórnar BFÍ.

10.4 Félagsdeildir geta, með samþykki stjórnar, haft sjálfstæðan fjárhag.

11.grein (útgáfa)

Félaginu er heimilt að gefa út ársskýrslur, tímarit og annað þess háttar. Stjórn félagsins er heimilt að afhenda þessi gögn félagsmönnum að kostnaðarlausu.

12.grein (sjóðir)

Allir sjóðir skulu vera í vörslu stjórnarinnar og skal hún sjá um að ávaxta þá á tryggan hátt. Um sérsjóði félagsins skulu samdar reglur og skal fjallað um þær eins og lög félagsins.

13.grein (félagsfundir)

13.1 Félagsfundi skal halda, þegar stjórnin telur þurfa, eða þegar fimmtungur félagsmanna krefst þess skriflega. Boði stjórn ekki slíkan fund innan viku frá því að henni hefur borist krafan, geta þeir sem fundar óska, sjálfir boðað til hans í nafni félagsins.

13.2 Boða þarf til félagsfundar með minnst viku fyrirvara. Fundarboð skal sent til félagsmanna á tölvupósti og jafnframt birt á heimasíðu félagsins og á samskiptamiðlum. Fundur telst löglegur sé rétt boðað til hans.

14.grein (aðalfundur)

14.1 Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málum félagsins. Afl atkvæða ræður úrslitum.

14.2 Aðalfund skal halda árlega, fyrir 1. maí.

14.3 Boða þarf til aðalfundar með minnst viku fyrirvara. Aðalfundarboð skal sent til félagsmanna á tölvupósti og jafnframt birt á heimasíðu félagsins og á samskiptamiðlum. Aðalfundur er aðeins löglegur sé rétt til hans boðað.

14.4 Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirfarandi mál:

    1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
    2. Reikningsskil.
    3. Skýrslur og tillögur þeirra vinnuhópa, er starfað hafa.
    4. Tillögur félagsstjórnar.
    5. Kjör félagsstjórnar.
    6. Kjör endurskoðenda.
    7. Ákvörðun félagsgjalda.
    8. Önnur mál.


14.5 Til breytinga á lögum félagsins þarf samþykki 2 / 3 atkvæðabærra félaga sem fundinn sækja. Ef lagabreytinga er óskað á aðalfundi, skal þess getið í fundarboði. Gildandi lagaákvæði og tillögur að breytingum þeirra skulu fylgja fundarboði.

14.6 Aðalfundi stýrir kjörinn fundarstjóri, hann tilnefnir ritara. Fundargerðina skal bóka. Fundargerð síðasta aðalfundar skal liggja frammi á aðalfundi. Formaður stýrir öðrum fundum. Þó skal formanni heimilt að tilnefna mann í sinn stað, ef hann óskar þess.

15.grein (félagsslit)

Félaginu verður aðeins slitið, séu félagsslitin samþykkt á sama hátt og gildir um lagabreytingar. Félagsfundur tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins.

16.grein (gildi laga)

Lög þessi öðlast þegar gildi og þar með falla úr gildi lög félagsins frá apríl 1971.

  1. Heildarendurskoðun laga, samþykkt á aðalfundi BFÍ, 14. apríl 2016.
  2. Breyting á 3. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 10. apríl 2014.


Einnig var samþykkt að fella úr gildi 5. gr. með tilfallandi breytingum á númerum lagagreina.

  1. Breyting á 8. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 13. apríl 2013
  2. Breytingar á 3. 5. 6. 8. 9. 13. 15. 17. og 23. grein voru samþykktar á aðalfundi BFÍ 29. apríl 2009
  3. Breyting á 7. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 24. apríl 2004
  4. Breyting á 3. gr. var samþykkt á aðalfundi BFÍ 15. apríl 2000
  5. Breytingar á 5. gr. og 6. gr. voru samþykktar á aðalfundi BFÍ 17. apríl 1999

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.