Dagur stafrænnar mannvirkjagerðar – 23. október í Hörpu

Dagur stafrænnar mannvirkjagerðar – 23. október í Hörpu

Sæktu þér miða á tix.is

BIM Ísland býður til spennandi ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu þar sem erlendir sérfræðingar fjalla um hvernig stafrænar umbreytingar í mannvirkjagerð geta aukið virðissköpun og gæði.

Áherslur ráðstefnunnar:

  • Open BIM í hönnun, framkvæmd og rekstri
  • Stafræn stjórnsýsla byggingarmála
  • Sjálfvirkni og gervigreind

Fyrirlesarar:

Helstu sérfræðingar Evrópu á sviði stafrænnar mannvirkjagerðar og BIM, sem jafnan koma fram á stórum alþjóðlegum ráðstefnum, verða með erindi. Sjá nánar á síðu viðburðar.

Fyrir hvern er ráðstefnan?

Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir stjórnendur og sérfræðinga í mannvirkjagerð, sem vinna að eða stefna á stafræna þróun, til að auka þekkingu og styrkja tengslanetið. Ráðstefnan gefur tækifæri til að ná til breiðs hóps á heimavelli.

Miðaverð: 24.900 kr.

Innifalið er morgunverður, hádegisverður og glæsilegt kokteilboð við lok ráðstefnunnar.

Sæktu þér miða á tix.is – takmarkað sætaframboð.

Kveðja

Stjórn BIM Ísland

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.