Kjarakönnun BFÍ

Kjarakönnun BFÍ verður framkvæmd af Prósent dagana 1. mars – 5. apríl 2024.

Í úrtaki eru um 450 byggingafræðingar á Íslandi. 

Þátttakendur verða beðnir um að svara spurningum út frá stöðu á vinnumarkaði og launum í febrúarmánuði árið 2024.

Niðurstöður kjarakönnuninnar verða kynntar á aðalfundi BFÍ þann 11. apríl nk. og sendar félagsmönnum í tölvupósti í kjölfarið.

Einn heppinn þátttakandi kjarakönnunar þetta árið mun verða dreginn út á aðalfundinum og hlýtur hann gjafabréf fyrir tvo á Monkeys.

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.