Rafræn byggingarleyfisumsókn

Í byrjun desember 2022 verða umsóknir um byggingarleyfi rafrænar hjá Reykjavíkurborg.

 Byggingarfulltrúi ásamt Umhverfis- og skipulagssviði boða þess vegna til kynningarfundar á rafrænum byggingarleyfisumsóknum í Norðursal Hins hússins, Rafstöðvarvegi 7-9, 110 Reykjavík, föstudaginn 9. desember kl. 12.

 Við þessi umskipti verða talsverðar breytingar á skilum gagna og meðhöndlun umsókna hjá Byggingarfulltrúa. Nú verður öllum umsóknum um byggingarleyfi skilað í gegnum Mínar síður Reykjavíkurborgar og svarbréf verða rafræn.

 Farið verður yfir nýtt umsóknarferli, skil á rafrænum gögnum og afgreiðsluferil byggingarfulltrúa. Umræður í lok fundar. Boðið verður upp á hádegissnarl á meðan birgðir endast.

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.