Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði KBFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríi grunnskólanna í febrúar 2023. Um er að ræða vikuna 23. febrúar – 2. mars.
Umsóknarfrestur er til 7. desember. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar. Sótt er um á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi (Velja „umsókn um úthlutun“ á stikunni). Aðeins í Klapparholti 8 og 10 er leyfilegt að vera með gæludýr. Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).
Vikan kostar 25 þúsund krónur. (Nema stóra húsið, Álfasteinssund 21 í Hraunborgum kostar 30 þúsund krónur). Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar.