Kjarakönnun BFÍ 2022

Kjarakönnun BFÍ var framkvæmd af Prósenti á tímabilinu 1. til 27. apríl 2022.

Í úrtaki voru 400 byggingafræðingar á Íslandi. Svarendur voru 173 og svarhlutfall 43%. Þátttakendur voru beðnir um að svara spurningum út frá stöðu á vinnumarkaði og launum í febrúarmánuði árið 2022.

Niðurstöður kjarakönnuninnar hafa nú verið send félagsmönnum í tölvupósti. Hafi póstur ekki borist má senda tölvupóst á [email protected] og þá uppfærum við netfangalistann ásamt því að senda könnunina á viðkomandi.

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur.